# Við erum að keyra á vegg
2019-08-06
Greinin [birtist á Stundinni](https://stundin.is/grein/9442/vid-erum-ad-keyra-vegg/).
---
Þrátt fyrir lúðraþyt og stórar yfirlýsingar um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040 er fátt sem bendir
til þess að okkur takist að standa við okkar hluta Parísarsamkomulagsins. Það er oft bent á að
vegasamgöngur séu ekki nema 7% af heildarútblæstri landsins og því lítið sem hægt er að aðhafast á
því sviði. Er þetta rétt?
Útblástur á Íslandi árið 2017 var um það bil 14.000 kílótonn af CO2 ígildi. ... þar af landnotkun:
9.321 kílótonn. ... þar af útblástursleyfi innan ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins: 1.800
kílótonn.
Ísland hefur skuldbundið sig til að fylgja Parísarsáttmálanum, en hann tekur hvorki til ETS
viðskiptakerfisins né útblásturs sem hlýst af landnotkun. Kíkjum á það sem eftir situr: _2.954
kílótonn og þar af eru 975 kílótonn sem tengjast vegasamgöngum. Þriðjungur af umræddum útblæstri er
vegna orkunotkunar í vegasamgöngum._
Sérfræðingar eru sammála um að þessi hluti af útblæstri okkar þurfi að fara niður í 500 kílótonn á
landsvísu fyrir árið 2030 til að samræmast markmiðum Parísarsáttmálans sem er 40% minni útblástur en
árið 1990. Í öðrum orðum: útblástur sem er rakinn til vegasamgangna þarf að öðru óbreyttu að
helmingast á 11 árum.
Ef litið er til loftslagsaðgerðaráætlunar ríkisstjórnarinnar er gulltryggt að þetta markmið næst
ekki í tæka tíð. Án frekari aðgerða mun rafbílavæðing aðeins hafa náð til 30% af bílaflota árið 2030
samkvæmt spálíkönum. Ferðavenjur munu ekki hafa breyst nægilega mikið og höfuðborgarsvæðið verður
ennþá með bílinn í forgangi þó stefnubreyting sveitarfélaganna sé farin að hafa jákvæð áhrif.
Ríkisstjórnin hefur veðjað á að öflugar ívilnanir fyrir raf- og tengiltvinnbíla skili sér í grænni
bílaflota. Stefnt er að banni á nýskráningum dísel- og bensínbifreiða, þó með undanþágum, árið 2030.
Á hverju ári bætast við 3-4.000 grænar fólksbifreiðir sem styðjast fyrst og fremst við vistvæna og
innlenda orkugjafa. Vöxtur í nýskráningum þessa flokks bíla var 21% frá árinu 2017 til 2018, en til
viðmiðunar telur bílaflotinn um 270 þúsund fólksbifreiðir. Langflestir nýir fólksbílar eru knúnir
innfluttu eldsneyti og verða ef til vill ennþá í umferð þegar örlagaárið 2030 gengur í garð.
Samkvæmt Samgöngustofu voru í fyrra 18 þúsund dísel- og bensínbílar nýskráðir en rafbílar
aðeins 617. Árið áður voru nýskráðir dísel- og bensínbílar tæplega 20 þúsund, á meðan rafbílar
voru 415. Þó að hver einasta nýskráning væri græn væri bílaflotinn ekki fyllilega endurnýjaður
árið 2030. Slíkur er fjöldi dísel- og bensínbíla sem hefur bæst við umferðina á síðustu árum með
tilheyrandi metum í umferðarmagni á höfuðborgarsvæðinu. Framboð á rafknúnum og langdregnum
fólksbílum er takmarkað enn um sinn og því hafa ívilnanir ekki haft meiri áhrif en raun ber vitni.
Miðað við fólksfjölgun, sparneytni nýrra bíla og hærra hlutfall raf- og tengiltvinnbíla þá verðum
við einnig að minnka akstur á höfuðborgarsvæðinu um 50% samkvæmt rannsóknarhópi Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands. Það er því deginum ljósara að það þarf að stöðva allar áætlanir um nýjar
gatnaframkvæmdir nema í allra brýnustu tilfellum til að tryggja öryggi og þá með því að hægja á
umferð. Við þurfum að þétta byggð með öllum ráðum til að draga úr fjölda og lengd bílferða sem og
hagræða eins og mögulegt er í vöruflutningum. Ný byggð verður að myndast fyrst og fremst miðsvæðis
og á samgönguásum þar sem áherslan er á almenningssamgöngur, ekki í jaðri byggðar — hvað þá í
sveitarfélögum þar sem íbúar sækja þjónustu og ferðast til vinnu með einkabílum til
höfuðborgarsvæðisins.
Ferðavenjur breytast ekki einungis með því að fleiri og fleiri séu haldnir loftslagskvíða.
Almenningur lifir og hrærist í manngerðu skipulagi. Loftslagskvíði- og skömm getur ekki verið hluti
af aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar heldur verðum við að gera stórtækar breytingar á umhverfinu og
dreifa þeim gæðum sem náttúran má við jafnt á hendur allra. Þessi áætlun um rafvæðingu bílaflota er
ekki sannfærandi sem helsta framlag ríkisins í því neyðarástandi sem ríkir nú þegar í
loftslagsmálum. Eins eru áform umferðaraukandi framkvæmda á við Sundabraut ekki til að auka á
trúverðugleika ríkisstjórnar eða aðgerðaráætlunar hennar í loftslagsmálum.
Orkuskipti, orðið sjálft, hefur orðið að pólitísku tískuorði. Ráðherrar keppast um að tilkynna nýjar
hleðslustöðvar. Á sama tíma er ekki enn búið að semja um aðkomu ríkisins að Borgarlínu og bílafloti
sem gengur að mestu fyrir innfluttu jarðefnaeldsneyti stækkar á hverju ári.
Sannleikurinn er sá að þessi orkuskipti nægja ekki þegar litið er til útblásturs sem tengist
ferðavenjum okkar. Þau komast ekki einu sinni nálægt því. **Sé ætlunin að ná hinu háleita markmiði
um 500 kílótonn árið 2030 þarf að draga úr akstri sem nemur 6,4% á hverju ári og annaðhvort sleppa
þeim ferðum eða styðjast við annað en einkabíl.** Til að það gerist höfum við tvo valkosti. Við
gætum skammtað eldsneyti eins og gert var á styrjaldartímum síðustu aldar. Hinn kosturinn er að laga
manngert umhverfi þannig að fólk finni einfaldlega ekki ástæður til að keyra eins mikið, með
fjárfestingum í innviðum fyrir gangandi og hjólandi sem og forgangi almenningssamgangna. Seinni
valkosturinn hlýtur að vera sá sem við lítum til.
- Eigum við að hækka bílprófsaldur um eitt ár strax og svo annað ár 2022?
- Eigum við að biðja Domino’s, Aha og lögregluna um að nota rafhjól eða létt bifhjól fyrir helming
ferða?
- Eigum við að hækka greiðslur fyrir förgun eldri bíla til að minnka bílaflotann „þeim megin“?
- Eigum við að fella niður VSK á rafhjólum og léttum bifhjólum?
- Eigum við að hraða framkvæmdum Borgarlínu?
- Eigum við að búa til hjólahraðbrautir meðfram stofnvegum og á milli sveitarfélaga?
- Eigum við að flýta banni á bifreiðum sem ganga bara fyrir eldsneyti til ársins 2020?
- Eigum við að banna óþarflega orkufrekar bifreiðar?
- Eigum við að byrja að nota burðarhjól fyrir vöruflutninga eins og Pósturinn gerir?
- Geta vinnuveitendur stytt vinnuvikuna og breytt bílastæðum í hjólastæði?
- Getum við lokað bílastæðum við skóla til að letja akstur ungs fólks?
### Góðu fréttirnar
- Allar þessar framkvæmdir koma til með að hafa jákvæð áhrif á þjóðfélagið þar sem gönguvænar borgir
eru vinsælar, öruggar og fallegar
- Mikið af þessum framkvæmdum spara ríkinu, heilbrigðiskerfinu og heimilum fjármuni
- Stefna sveitarfélaga um að setja gangandi og hjólandi í forgang nýtur meiri stuðnings meðal
almennings en nokkru sinni fyrr
- 85% af þjóðinni trúir að hlýnun jarðar sé á okkar ábyrgð
- Aukning á notkun almenningssamgangna bætir rekstrarskilyrði stakra leiða og rennir stoðum undir
bætta þjónustu
- Vel er hugsanlegt að rafhlöðutækni bætist á næstu árum og skili sér í hærri hlutdeild nýrra
rafbíla
### Heimildir
- [Ísland og loftslagsmál](https://www.stjornarradid.is/media/umhverfisraduneyti-media/media/PDF_skrar/island_og_loftslagsmal_hhi_feb_2017.pdf)
- [Minnisblað: Mat á losun bifreiða á höfuðborgarsvæðinu árið 2030](https://fundur.reykjavik.is/sites/default/files/agenda-items/minnisblad_-_mat_a_losun_bifreida_a_hofudborgarsvaedinu_arid_2030.pdf)
- [Skattar á ökutæki og eldsneyti 2020–2025](https://www.stjornarradid.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=e301833f-a486-11e8-942c-005056bc530c)
- [Orkuskipti í vegasamgöngum](https://www.stjornarradid.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=a655b9ef-b4e5-11e8-942c-005056bc4d74)
- [Tölfræði um nýskráningu bifreiða og bílaflota frá Samgöngustofu](http://bifreidatolur.samgongustofa.is/?nid=25)
- [Macroeconomic effects of fiscal incentives to promote electric vehicles in Iceland: Implications for government and consumer costs](https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S0301421517308583?via%3Dihub#s0140)
- [„Losun íslands“ — gögn frá Umhverfisstofu](http://umhverfisstofnun.is/loft/losun-grodurhusalofttegunda/losun-islands/)